Annað brúðarkort júní 20, 2008
Ég gerði þetta kort um daginn fyrir mágkonu mína sem er að fara í brúðkaup. Hér hefur verið í nógu að snúast, hef verið að vinna og svo undirbúa afmæli heimasætunnar sem varð 6 ára í gær á kvennréttindadaginn. Hún var alveg himinlifandi með daginn
Vonandi fer ég nú að hafa betri tíma til að gera kort. Það styttist í að maður þurfi að byrja á jólakortunum

Hjólabrettaskvísa júní 2, 2008
Ah, ég var ekki alveg nógu ánægð með þetta kort, er búin að rífa það upp tvisvar til að laga og breyta og ætla ekki að breyta því meira. Geri bara betur næst. Ég er svo skotin í þessum Papiliostimplum, hver öðrum fallegri.
Þetta kort er gert úr Bazzil og nýja BG pp. Myndin er stimpluð á vatnslitapappír með Stazon bleki og lituð með SU bleki.
Beibí beibí maí 31, 2008
Jæja …loksins komið kort
Ekki alveg að standa mig í að setja inn kort á dag enda frekar óraunhæft markmið hjá mér kannski. Hef jú ýmislegt annað að gera en að kortast. Nú er maður farinn að vinna svo það er ekki alltaf tími fyrir kort. Svo þarf maður víst að vera í stuði líka. En í dag tókst mér að gera kort. Hafði það loksins af að nota nestabilities mótin mín og þar opnast bara nýr heimur í þessu kortastússi. Hlakka til að halda áfram að nota þau
Þetta kort er gert úr:
Pappír: Bazzil og BG
Stimpill: Papilio
Blek: Stampin Up
Skraut: Prima blóm og einhver borði.
Smá bið maí 16, 2008
Eftir korti dagsins, ég get ekki klárað það fyrr en í kvöld
The card of the day will be here tonight
Endalausar magnoliur maí 15, 2008
Ég fæ bara ekki nóg af því að gera kort með þessum magnolium, ferlega skotin í þeim eitthvað
Veit ekki hvort mér takist alveg að setja inn eitt kort á dag, ég er svo lengi að gera eitt svona kort. En….ætla að reyna eins og ég get
Þetta kort er gert úr:
Pappír: Bazzil og Fancy Pants
Blek og litir: Brilliant blek og copic’s litir
Skraut: American Craft borði og Prima blóm, MM brads.
Kort dagsins maí 14, 2008
Er nú bara unnið í fljótheitum og er því bara frekar einfalt, en það verður bara að hafa það
Maður er nú ekkert að sitja inni í svona góðu veðri og leika sér eða hvað! Ég stefni nú bara á að kíkja á skagann í heimsókn til frænku minnar
Pappír: Bazzil og Fancy pants
Blek og litir: Brilliant, SU blek og Copic’s
Skraut: American crafts borði, einhver tala og MM sylgja.



