Og munu halda áfram að vera á ferðinni því ég fer alveg að fá nýju stimplana mína sem ég pantaði mér um daginn :) Ég er svo gjörsamlega kolfallinn að mér finnst bara hönglarnir blikna við hliðina á magnoliunum núna
Það hefur verið nóg að gera hjá mér en samt hef ég gefið mér tíma til að gera eitt og eitt kort. Ég er á kafi í verknámi þessa dagana, var til dæmis viðstödd keisara í gær í fyrsta sinn, þvílík upplifun!!
Svo hafa veikindi herjað á okkur hér á heimilinu, ég byrjaði á að fá streptokokkasýkingu í hálsinn en er nú orðin góð, síðan veiktist stelpuskottið og er að jafna sig. Hinir hafa verið að kljást við kvef. Vonandi erum við búin í þessum veikindapakka núna!
Þetta er Bazzil og SU pp, smá BG pp líka. Prima blóm og eitthvað brads. Magnolia stimpluð á vatnslitapp, lituð með SU bleki, Distress bleki og hvítum penna. Notaði líka FP stimpla til að gera dúddlið.
Magnolia enn á ferð janúar 29, 2008
Magnolia í rigningu janúar 23, 2008
Mér finnst þessir stimplar geggjaðir enda var ég að panta mér slatta í gær og á orðið dágóðan helling af þessum stimplum
Mér finnst fátt notalegra en að setjast niður smá stund og lita þessa stimpla.
Í þetta kort notaði ég Bazzil, SU pp og vatnslitapp undir magnoliuna sem er lituð með SU bleki. Svo eru þarna primablóm, brads og glerperlur frá perlunni henni Möggu
Á tagsinu sem er undir myndinni stendur: Til hamingju.
Breytt dós janúar 21, 2008
Smá tilbreyting frá kortunum. Ég keypti mér járndósir í dag til að hafa undir litina og pennana mína, og mig langaði auðvitað að skrappa þær eitthvað
Ég keypti mér líka lítinn skáp til að hengja upp og í hann raðaði ég SU stimpilpúðunum mínum. Mikið er fúlt að það er bara ómögulegt að stafla þessum púðum upp! Eins og þeir koma nú annars flott út í skápnum mínum
Þetta er gert úr tin dós, SU pp, primablómum, einhver brads og borði, og auðvitað magnolíustimpill sem er litaður með SU bleki
1 árs afmæliskort janúar 19, 2008
Mikið er gaman að gera svona magnoliukort, þetta eru svo hrikalega krúttlegir stimplar! Enda var fjárfest í nokkrum til viðbótar í dag
Ég gerði þetta kort með mörgum hléum þar sem heilsufarið er ekki upp á sitt besta í dag…er með kvef og hálsbólgu svo um leið og ég sest í stólinn minn byrja bara tárin að renna.
Þetta er að sjálfsögðu úr Bazzil, BG Blush, Prima blóm og lauf og svo annað blóm sem er pönsað út og rennt í gegnum buggið, hjörtun klippti ég út og renndi í gegnum buggið. Stimpillinn er magnolia og er litaður með SU bleki. Smá glimmer á vasanum og vængjunum
6 ára afmæliskort janúar 18, 2008
Fyrir vin dóttur minnar sem er með henni í leikskólanum. Skvísan fer í tvö afmæli á sunnudaginn og er næst á dagskrá að gera hitt kortið sem hún gefur þá.
Mikið getur maður nú draslað út þegar maður er að kortast svona, fjúff….allt á hvolfi bara á skrappborðinu, eins gott að týnast ekki sjálf í draslinu!
Þetta kort er úr Bazzil, BG vagabond, prima blóm og BG tala, stimpillinn er magnolia og lituð með SU bleki. Ef þið skoðið vel sjáið þið að brúni pp er gataður með dútl munstri
Magnoliur janúar 17, 2008
Loksins tókst mér að gera kort en það hefur verið erfitt að koma sér í gang eftir jólakortaflóðið. Núna eru það magnoliurnar sem eiga hug minn allan, þær eru sko alveg búnar að heilla mig
Þetta kort er gert úr kartoni, BG Infues pp, primablómum, brads, tölu (ísinn) og magnolíustimpill sem er litaður með SU bleki.




